Álag - Þórður Helgason

Það er talsvert á mann lagt

þegar maður er bara sjö ára

að vera í sveit í Fljótshlíðinni.

Hafa Dímon fyrir augunum

og Þórólfsfell steinsnar frá

heimsækja Hlíðarenda á hverjum sunnudegi

hlusta á Njálu

sagða af sterkum körlum og stórum strákum


og vera svona lítill.


Ummæli

Vinsælar færslur